Nemendur geta stuðst við APA sniðmát bókasafnsins fyrir lokaritgerðir.
Athugið að í einhverjum tilfellum eru sérstök fyrirmæli frá einstaka deildum sem stangast á við viðmið APA um uppsetningu. Í þeim tilfellum skal fara eftir fyrirmælum deilar og þá þarf að gera breytingar á sniðmátinu.
Sniðmát þetta er hugsað til að hjálpa nemendum að koma sér af stað og búið er að sníða stílinn í skjalinu samkvæmt viðmiðum APA.
Hægt er að nota þetta sniðmát fyrir minni ritgerðir, og þá eyða óþarfa blaðsíðum og upplýsingum.