Bókasafnið pantar bækur og tímaritsgreinar sem ekki eru til á safninu, frá öðrum háskóla- og sérfræðisöfnum, fyrir nemendur og starfsfólk HR. Nemendum sem stunda skiptinám við erlenda háskóla ber að snúa sér til viðkomandi háskólabókasafns. Önnur háskóla- og sérfræðibókasöfn geta haft milligöngu um lán úr safnkosti bókasafns HR fyrir sína lánþega.
Vinsamlegast sendið tölvupóst á bokasafn@ru.is með öllum spurningum varðandi millisafnalán eða komið við í afgreiðslu safnins og fáið aðstoð.
Hve langan tíma tekur að fá millisafnalán?*
Bókasafn HR afgreiðir beiðnir um millisafnalán samdægurs að öllu jöfnu. Hið sama gildir almennt um bókasöfnin sem fá beiðnir frá okkur. Eftirfarandi tímamörk eru til viðmiðunar:
Greinar
1-3 virka daga
7-14 virka daga ef greinin er send með pósti. Vegna höfundalaga senda sum söfn (einkum norræn) greinar eingöngu með pósti
Bækur
Innanlands: 3 virka daga
Frá Norðurlöndum: 7-10 virka daga
Frá öðrum löndum: 7-14 virka daga
*Miðað er við að umbeðið efni sé aðgengilegt
Hvernig veit ég að millisafnalánið mitt er komið?
Þú færð tilkynningu með tölvupósti þegar pöntunin þín kemur á safnið.
Hvernig nálgast ég millisafnalánið mitt?
Pantanir þarf að sækja á safnið. Starfsfólk HR getur þó óskað eftir því að fá greinar sendar á sína starfstöð.
Vegna samninga við önnur söfn er óheimilt að áframsenda greinar rafrænt. Þær eru því eingöngu afhentar á pappír.
Sérhvert safn setur eigin útlánareglur en yfirleitt er lánstíminn 4 vikur.
Bækur úr safnkosti Seðlabanka Íslands, Alþingis og annarra innlendra stjórnsýslusafna sem eru reiðubúin að lána úr safnkosti sínum, eru eingöngu í lestrarsalsláni, þ.e. þær þarf að lesa á bókasafninu.
Góð samvinna við önnur söfn er forsenda góðrar millisafnalánaþjónustu. Því er afar mikilvægt að virða þann lánstíma sem okkur er veittur.
Endurnýjun lána
Ef lánstíminn nægir ekki má óska eftir endurnýjun þegar skiladagur nálgast. Lánið er yfirleitt endurnýjað ef enginn annar bíður.
Hverjir getað pantað millisafnalán?
Hvað er hægt að panta?
Bækur, bókarkafla, tímaritsgreinar úr útgefnum tímaritum, skýrslur og annað útgefið efni sem hægt er að nálgast hjá öðrum bókasöfnum.
Hvaðan er pantað?
Bækur eru ekki pantaðar frá almenningssöfnum hérlendis.
Hvernig panta ég millisafnalán?
Panta bók
Panta grein
Kynnið ykkur verðskrá bókasafnsins áður en beiðni um millisafnalán er send til safnsins. Rukkað er fyrir ósótt efni.
Starfsmenn HR og doktorsnemar fá öll millisafnalán frítt
Meistaranemar fá 5 millasafnalán á önn frítt, en greiða fyrir umframlán samkvæmt verðskrá.
Verðskrá:
Tímaritsgreinar: 1.000 kr.
Bókakaflar: 1.000 kr.
Bækur frá innlendu safni: 1.000 kr.
Bækur frá erlendu safni: 1.500 kr.
Rukkað er fyrir ósótt efni.
Lánþegar bera ábyrgð á gögnum sem þeir hafa tekið að láni og er óheimilt að lána þau öðrum. Skemmist eða glatist gagn er lánþegi, þ.e. sá sem skráður er fyrir láninu, ábyrgur og getur þurft að greiða fyrir nýtt eintak. Reynt er að meta kostnað við kaup á nýju riti, en lágmarksgjald er 8.000 kr.