Skip to Main Content

APA staðall

Munnlegar heimildir

Munnlegar heimildir

ATH. Gangið alltaf úr skugga um að kennari samþykki munnlegar heimildir sem gildar heimildir. Leyfi kennari munnlegar heimildir, skal nota þær með varúð og í hófi.

Munnlegar heimildir geta t.d. verið tölvupóstur, viðtöl, netspjall, óuppteknir fyrirlestrar, símtöl og sms sem ekki er aðgengilegt öðrum en höfundi. Munnlegar heimildir eru aðeins skráðar í tilvísunum, ekki heimildaskrá, þar sem heimildin er oftast óbirt og óaðgengileg lesandanum.

Í tilvísunum er skráð nafn þess sem vitnað er í, ásamt eins nákvæmri dagsetningu og mögulegt er.  

Tilvísun:   Breskir hermenn á Akranesi voru upp til hópa ungir menn (Hafliði Sturluson, munnleg heimild, 2. febrúar 2012)
Heimildaskrá: 
Ekki setja munnlegar heimildir í heimildaskrá
Ekki setja munnlegar heimildir inn í Zotero

 

Sjá leiðbeiningar ef þú ert að skrifa ritgerðina á ensku hjá APA Style.

Þátttakendur í rannsókn

Viðtöl sem tekin eru sem partur af eigindlegri rannsókn er farið öðruvísi með en munnlegar heimildir. Þessi viðtöl eru partur af rannsókn en ekki heimildir. 

Til að fræðast meira um viðtöl sem part af rannsókn skv. APA eru ítarlega leiðbeiningar að finna á vef APA samtakanna eða á blaðsíðu 278 í Publication manual of the American Psychological Association, 7. útg.