Upplýsingar um hversu marga höfunda/ritstjóra/þýðendur skal skrá eru að finna undir kaflanum Höfundar
Tilvísun í útgefna ráðstefnugrein inniheldur: Höfund, "Titil" í nafn ritstjóra (ritstj.), Titill ráðstefnuritsins (útgefandi, dagsetning) og ef greinin er einungis til rafræn skal bæta við vefslóð og hvenær skoðað.
Sjá nánar í Oscola 4. útg. bls. 41-42 kafli 3.4.6
Á ensku eiga titlar (t.d. tímaritsgreina, tímarita, bókakafla, bóka, skýrslna) að vera með stóran staf skv. enskri málvenju. Ef ritið er á íslensku eiga allir bókstafir að vera litlir nema upphafsstafur og upphaffsstafur undirtitils (þ.e. fyrsti stafur eftir :).
Dæmi um erindi á rástefnu í prentuðu ráðstefnuriti:
Neðanmálsgrein:
Svala Ísfeld Ólafsdóttir, „Viðhorf til kynferðisbrota gegn börnum“ í Trausti Fannar Valsson (ritstj.), Rannsóknir í félagsvísindum X. Lagadeild (Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands 2009) 260.
Heimildaskrá:
Svala Ísfeld Ólafsdóttir, „Viðhorf til kynferðisbrota gegn börnum“ í Trausti Fannar Valsson (ritstj.), Rannsóknir í félagsvísindum X. Lagadeild (Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands 2009)
Ef ráðstefnurit er eingöngu í rafrænni útgáfu skal bæta við vefslóð og hvenær skoðað.
Upplýsingar um hversu marga höfunda/ritstjóra/þýðendur skal skrá eru að finna undir kaflanum Höfundar
Tilvísun í fyrirlestur sem fluttur er á ráðstefnu inniheldur: Höfund, "Titil" (Heiti ráðstefnunnar, staðsetningu og fulla dagsetningu)
Sjá nánar í Oscola 4. útg. bls. 41-42 kafli 3.4.6
Athugið að nauðsynlegt er að fá leyfi frá höfundi ef vísað er í ráðstefnugrein sem ekki er aðgengileg almenningi.
Hér þarf að nota Item type - Report (þrátt fyrir að þetta er ekki skýrsla).
Meginregla:
Dæmi:
Neðanmálsgrein:
Ben McFarlane og Donal Nolan, „Remedying Reliance: The Future Development of Promisory and Proprietary Estoppel in English Law“ (Obligations III conference, Brisbane júlí 2006).
Heimildaskrá:
McFarlane B og Nolan D, „Remedying Reliance: The Future Development of Promisory and Proprietary Estoppel in English Law“ (Obligations III conference, Brisbane júlí 2006)