Skip to Main Content

IEEE staðall

IEEE heimildastaðall er notaður í eftirfarandi deildum HR: iðn- og tæknifræði, verkfræði og tölvunarfræði.

IEEE staðall

IEEE staðallinn fyrir heimildaskráningu er upphaflega búinn til fyrir fræðigreinar. Gerðar hafa verið smávægilegar breytingar til að aðlaga staðalinn ritgerðavinnu. Í þessum leiðbeiningum er upprunalegi enski textinn látinn fylgja með til frekari útskýringa.

Þessi íslenska þýðing byggir á leiðbeiningum frá IEEE um heimildaskráningu frá 2023 (uppfært 29. nóvember 2023): IEEE Reference Guide

Kennarar HR gætu kosið að styðjast við aðrar útfærslur af IEEE staðlinum.

Enda þótt upplýsingafræðingar HR hafi leitast við að setja eftirfarandi leiðbeiningar fram villulausar og samkvæmt áreiðanlegustu leiðbeiningum frá IEEE, þá er ekki unnt að ábyrgjast að ávallt sé svo.

Nemendur eru hvattir til að bera eftirfarandi leiðbeiningar saman við ofangreindar leiðbeiningar frá IEEE og/eða bera vafaatriði undir kennara sína.

Ef ritgerðin er skrifuð á ensku skal styðjast við ensku útgáfuna af IEEE staðlinum
 

IEEE útgáfur
IEEE Reference Guide 
Staðall fyrir heimildaskráningu, útlistar hvernig á að vitna í ýmsar heimildir. 
IEEE Editorial Style Manual 
Þessi handbók veitir leiðbeiningar um uppsetningu, m.a.: skammstafanir, kaflafyrirsagnir, tölur, jöfnur, neðanmálsgreinar og hvernig eigi að vitna í myndir og töflur.
Athugið að hér er aðallega verið að vísa til uppsetningu útgefinna tímaritsgreina, nemendur eiga fyrst og fremst að fylgja leiðbeiningum kennara varðandi uppsetningu verkefna.  
IEEE Mathematics Guide 
Sýnir hvernig stærðfræðilegar jöfnur ættu að vera sýndar í tæknigreinum.

 

 

 

Heimildaskrá skv. IEEE

Hér er hægt að sjá dæmi um heimildaskrá samkvæmt IEEE staðlinum - uppsetning og útlit