Skip to Main Content

Þjónustan og safnið: Reglur

Reglurasafni

Umgengnisreglur bókasafnsins

  • Þjónusta bókasafnsins er einkum ætluð nemendum, kennurum og öðru starfsfólki Háskólans í Reykjavík.
  • Gestir eru beðnir að sýna öðrum safngestum tillitssemi og virðingu og leggja sitt af mörkum til að hægt sé að vinna í ró og næði á bókasafninu.
  • Grænu svæðin: eru fyrir utan safnið. Þar er leyfilegt að taka símtöl, spjalla um daginn og veginn og borða mat.
  • Gulu svæðin: gott næði og vinnufriður, hópavinna með samtölum í lágum hljóðum. Snarl sem enginn sóðaskapur er af og drykkir með loki leyfðir. Símar á silent og notið heyrnatól. Gætið að ekki heyrist hátt hljóð út um heyrnatólin.
  • Rauðu svæðin: þar skal ríkja algjört næði. Engin samtöl og enginn matur leyfður. Drykkir skulu hafa lok. Símar á silent og notið heyrnatól. Gætið að ekkert hljóð heyrist út um heyrnatólin.
  • Sérstök athygli er vakin á því að bannað er að tala í farsíma á bókasafninu
  • Heimilt er að vera með ávexti og sælgæti á bókasafninu á grænum og gulum svæðum. Annar matur er ekki leyfilegur. Heimilt er að vera með drykki í íláti með loki. Sérstaklega er strangt tekið á engum mat á teppalögðum svæðum. 
  • Gestum er heimilt að nota tölvur í lesrými svo lengi sem hljóð frá þeim valda öðrum gestum ekki ónæði.
  • Sérstök athygli er vakin á því að ekki er heimilt að taka frá lesborð á bókasafni. Allt sem er skilið eftir á borðum er fjarlægt þegar safnið er opnað klukkan 8:00.
  • Standi lesborð ónotað í klukkustund eða lengur er starfsfólki heimilt að rýma borðið.
  • Allar bækur og önnur gögn sem farið er með út af bókasafninu þarf að fá lánuð í afgreiðslunni.
  • Gestir eru hvattir til að ganga vel um bókasafnið og kynna sér og virða almennar umgengnisreglur Háskólans í Reykjavík