Skip to Main Content

Háskólagrunnur: Heim

Leiðarvísir fyrir háskólagrunn

Þessi leiðarvísir er ætlaður nemendum og kennurum í háskólagrunni. Hér finnið þið gagnasöfn, leitarvélar og ýmsar gagnlegar upplýsingar varðandi heimildaleit og heimildaskráningu.

Tenglar

Gagnasöfn í háskólagrunni - sérvalin gagnasöfn í áskrift HR og í landsaðgangi fyrir nemendur í háskólagrunni. Meðal gagnasafna eru Britannica Academic, ProQuest, ScienceDirect o.fl.
Leitir.is (HR) - Leitir.is veitir aðgang að fjölbreyttu vísinda-, fræðslu- og afþreyingarefni. Vefurinn veitir upplýsingar um bækur, tímarit og greinar, rafbækur, hljóðbækur, tónlist, ljósmyndir, lokaverkefni háskóla, myndefni, vefsíður, fornleifar og muni. Oft er hægt að skoða ljósmyndir og sækja heildartexta.
Tímarit í áskrift - listi yfir tímarit í áskrift HR eða í landsaðgangi. Hægt er að fletta upp tímaritum eftir titlum og ef tímaritið kemur upp þá er það í áskrift. Upplýsingarnar sem koma fram eru meðal annars í hvaða gangasafni/söfnum tímaritið er aðgengilegt, hvaða árgangar eru aðgengilegir og hvort tímaritið sé ritrýnt. 
Heimildaleit - leiðarvísir um heimildaleit, ritrýni, áreiðanleika heimilda, ritstuld, Turnitin o. fl. 

APA heimildastaðall - nemendur í háskólagrunni nota APA staðalinn fyrir tilvísanir og heimildaskrár.

Zotero - Zotero er ókeypis heimildaforrit sem bókasafnið mælir með að nemendur noti við ritgerðaskrif. Forritið heldur utan um heimildirnar og býr til tilvísanir og heimildaskrá samkvæmt APA í Word. Því fyrr sem byrjað er að nota Zotero því betra. Zotero eykur gæði verkefna og sparar nemendum tíma við heimildaskráningu.
Turnitin - Turnitin er hugbúnaður til varnar ritstuldi sem háskólar á Íslandi hafa tekið í notkun. Hugbúnaðurinn ber texta/verkefni nemanda saman við gagnasafn sem innbyggt er í kerfið og skilar samanburðarskýrslu.
Millisafnalán - ef bókasafnið á ekki bókina eða hefur ekki aðgang að heildartexta greinarinnar þá er hægt að panta bókina/greinina með millisafnalánaþjónustunni. Nemendur skulu kynna sér verðskrána áður en pantað er.