Upplýsingafræðingar bókasafnsins eru sérfræðingar í safnkosti bókasafnsins og hvernig hann getur nýst fræðasviðum háskólans. Þeir geta upplýst um hvaða efni er í boði og hvar það er að finna og þannig flýtt fyrir heimildaleit. Einnig geta þeir aðstoðað við að hafa uppá frumheimildum, ráðstefnuritum, skýrslum o.fl. og veitt margvíslega hagnýta aðstoð.
Upplýsingafræðingar bókasafnsins:
- Veita hagnýtar upplýsingar um heimildaskráningarforritið Zotero
- Veita hagnýtar upplýsingar um helstu stílsnið sem notuð eru; APA, IEEE og OSCOLA
- Finna réttar upplýsingar um tilteknar heimildir fyrir heimildaskrár
- Aðstoða við að finna áhrifastuðla tímarita og höfunda
- Veita upplýsingar um stefnu einstakra tímarita varðandi opinn aðgang
- Aðstoða við vöktun upplýsinga sem tengjast ákveðnu viðfangsefni
- Útvega efni frá öðrum bókasöfnum: Greina- og bókapantanir, millisafnalán
- Bjóða aðgang að gagnasöfnum og rafrænum tímaritum utan HR með fjaraðgangi
- Skemman.is er varðveislusafn íslenskra háskólabókasafna. Þar eru einkum varðveitt eintök af lokaritgerðum en einnig fræðigreinar og annað efni frá háskólakennurum - Leiðbeiningar um hvernig skýrslur og greinar eru settar inn í Skemmuna