Lánþegar eru starfsfólk og nemendur Háskólans í Reykjavík. Þessir lánþegar geta fengið gögn að láni gegn eigin kennitölu, án endurgjalds. Útskrifuðum nemendum býðst að kaupa bókasafnskort. Þau gilda í eitt ár í senn og kosta 2.500 krónur. Almennur útlánstími bóka er fjórar vikur.
Lánþegar bókasafnsins geta tekið frá bækur sem eru í útláni með því að skrá sig inn á leitir.is. Sjá leiðbeiningar um frátektir á leitir.is. Starfsmenn bókasafnsins aðstoða einnig við frátektir. Þegar frátekinni bók er skilað á safnið berst þeim lánþega sem er nr. 1 á biðlista tilkynning með tölvupósti um að bókin sé komin á safnið. Bókinni er haldið í 3 virka daga fyrir lánþegann.
Skömmu áður en lánstími rennur út er send áminning um að skiladagur nálgist. Lánþegar bókasafnsins endurnýja lánin sín sjálfir með innskráningu á leitir.is. Bókasafnið úthlutar lykilorði en notandanúmer er kennitala notanda. Skammtímalán og gögn sem eru frátekin fyrir aðra lánþega er ekki hægt að endurnýja. Ef lánið er hvorki endurnýjað né bók skilað áður en lánstíminn rennur út er send tilkynning um vanskil. Virði lánþegi ekki útlánstíma og sinni hann ekki ítrekuðum áminningum áskilur safnið sér rétt til að taka viðkomandi af lánþegaskrá þar til útistandandi gögnum hefur verið skilað og senda reikning vegna glataðra safngagna. Markmiðið er fyrst og fremst að fá bækurnar aftur á bókasafnið fyrir notendur safnsins.
Nemendur og starfsfólk hafa aðgang að Leitir.is og geta sjálfir endurnýjað lánin sín. Nauðsynlegt er að fá lykilorð inn á Leitir.is í fyrsta skipti hjá bókasafninu.
Hægt er að nálgast lykilorð með því að:
Lykilorð eru aldrei gefin upp í síma eða í netspjalli - ef ekki er mætt á staðinn þá er lykilorðið sent á RU-netfang nemenda.
Með því að skrá sig inn á Leitir.is er hægt að:
Starfsmenn bókasafnins eru hættir að endurnýja útlán fyrir nemendur nema í þeim tilfellum þar sem nemendur geta ekki endurnýjað sjálfir, t.d. þegar um millisafnalán eða annað sérefni er að ræða.