Skref 1 af 3: Lýsa lokaverkefni
> Hér er nauðsynlegt að tilgreina höfund, fæðingarár, titil ritgerðar, námsstig og viðeigandi tungumál texta.
- Ef höfundar eru fleiri en einn skal „Bæta við höfundi“ og skrá höfunda í þeirri röð sem þeir eru á lokaverkefninu.
- Gættu þess að titillinn sé sá sami og á verkefninu sjálfu. Bættu við titli á fleiri tungumálum ef við á.

> Setja þarf inn útdrátt og muna að velja viðeigandi tungumál á útdrætti. Bættu við útdrætti á öðru tungumáli ef við á.
- Ekki setja trúnaðarupplýsingar í útdrátt þar sem útdrættir eru birtir á vef um leið og verk hefur verið samþykkt.
- Er útdráttur bæði á íslensku og ensku? Ef já „Bæta við útdrætti“ og tilgreina tungumál.
- Setjið inn „Tengd vefslóð“ ef það á við (valfrjálst).

> Þá þarf að setja inn ártal og mánuð sem segir til um hvenær verkefnið er sett inn í Skemmuna. Einnig þarf að setja inn nafn leiðbeinanda og bæta við leiðbeinendum ef þeir eru fleiri en einn.
- Athugið: Nemendur í BSc í sálfræði setja ekki inn nafn leiðbeinanda hvorki í Skemmuskilum né á PDF skjalinu.
- Setjið inn „Athugasemdir“ eða „Styrktaraðili“ ef við á (valfrjálst).

> Þegar smellt hefur verið á Áfram kemur að næsta skrefi - Skref 2 af 3
