Skip to Main Content

Hagfræði: Heim

Leiðarvísir fyrir hagfræðinemendur

Þessi leiðarvísir er ætlaður nemendum í hagfræði. Hér er tekið saman ýmislegt gagnlegt sem tengist ritgerðaskrifum í námi og hvernig best er að nýta bókasafnið. 

Tenglar

Gagnasöfn í hagfræði - sérvalin gagnasöfn í áskrift HR og í landsaðgangi fyrir nemendur í hagfræði. Meðal gagnasafna eru ScienceDirect og ProQuest o.fl.
Leitir.is (HRveitir aðgang að fjölbreyttu vísinda-, fræðslu- og afþreyingarefni. Vefurinn veitir upplýsingar um bækur, tímarit og greinar, rafbækur, hljóðbækur, tónlist, ljósmyndir, lokaverkefni háskóla, myndefni, vefsíður, fornleifar og muni. Oft er hægt að skoða ljósmyndir og sækja heildartexta.
Tímarit í áskrift - listi yfir tímarit í áskrift HR eða í landsaðgangi. Hægt er að fletta upp tímaritum eftir titlum og ef tímaritið kemur upp þá er það í áskrift. Upplýsingarnar sem koma fram eru meðal annars í hvaða gagnasafni/söfnum tímaritið er aðgengilegt, hvaða árgangar eru aðgengilegir og hvort tímaritið sé ritrýnt. 

Heimildaleit - leiðarvísir um heimildaleit, ritrýni, áreiðanleika heimilda, ritstuld, Turnitin o. fl. 

APA heimildastaðall - nemendur í hagfræði nota APA staðalinn fyrir tilvísanir og heimildaskrár.
QuestionPro - bókasafnið býður nemendum upp á aðgang að QuestionPro, öflugt tól til að búa til spurningakannanir. Til að fá aðgang að QuestionPro þarf að senda póst á bokasafn@ru.is og óska eftir aðgangi. 
Zotero - Zotero er ókeypis heimildaforrit sem bókasafnið mælir með að nemendur noti við ritgerðaskrif. Forritið heldur utan um heimildirnar og býr til tilvísanir og heimildaskrá samkvæmt APA í Word. Því fyrr sem byrjað er að nota Zotero því betra. Zotero eykur gæði verkefna og sparar nemendum tíma við heimildaskráningu.
Turnitin - Turnitin er hugbúnaður til varnar ritstuldi sem háskólar á Íslandi hafa tekið í notkun. Hugbúnaðurinn ber texta/verkefni nemanda saman við gagnasafn sem innbyggt er í kerfið og skilar samanburðarskýrslu.
Millisafnalán - ef bókasafnið á ekki bókina eða hefur ekki aðgang að heildartexta greinarinnar þá er hægt að panta bókina/greinina með millisafnalánaþjónustunni. Nemendur skulu kynna sér verðskrána áður en pantað er.