Bókasafnið notar Dewey flokkunarkerfið til að raða bókunum í hillunum. Dewey kerfið byggir á hlaupandi tölum...
Helstu flokkar þar sem þú finnur viðskiptafræði bækur:
330 Hagfræði
330.9 Hagsaga
332 Fjármálahagfræði
332.1 Bankar og bankamál
332.6 Fjárfesting
333 Auðlindahagfræði
336 Opinber fjármál
337 Alþjóðahagfræði
338.5 Rekstrarhagfræði
339 Þjóðhagfræði
650 Stjórnun
657 Bókhald
658 Stjórnun fyrirtækja
658.3 Starfsmannastjórnun
658.404 Verkefnastjórnun
658.408 Samfélagsábyrgð
658.8 Markaðsmál
659.1 Auglýsingar
Til þess að finna bækur og annað rafrænt efni í áskrift Hr á að nota hr.leitir.is. Leitir er rafræn bókasafnsskrá yfir allar bækur sem til eru á íslenskum bókasöfnum ásamt rafrænum tímaritsgreinum í Landsaðgangi. Byrjað er að leita aðeins í safnkosti HR en svo er hægt að víkka leitina og athuga hvort efnið sé til í öðrum söfnum á landinum.
Notaðu Innskráningu með rafrænum skilríkjum til að endurnýja útlán eða taka frá bækur. Bækur sem eru í útláni er hægt að taka frá og þú færð sendan ru-tölvupóst þegar þú mátt sækja bókina en bókin er geymd fyrir þig í 3 daga. Ósóttar frátektir verða lánaðar næsta í röðinni.
Háskólinn í Reykjavík hefur tekið í notkun nýtt rafbókasafn fyrir háskólastig með aðgengi að tæplega 200.000 titlum:
Til að virkja aðganginn þinn að ProQuest Ebook Central í fyrsta skiptið þarftu: