Skref 2 af 3: Hlaða upp skrám
> Smelltu á Choose File og veldu verkefnið í heild sinni (með titilsíðu) á PDF formi í tölvunni
- Passaðu að titill PDF skjalsins sé sá sami og titill verkefnis. Skráarheiti PDF skjals er sýnilegt í Skemmunni.
> Smelltu á Hlaða upp – verkefnið hleðst upp í Skemmuna.

> Veldu Heildartexti (eða annað sem við á) sem lýsingu á því skjali sem hlaðið er inn
> Skrársnið á að vera PDF
> Aðgangur velja Opinn
- Ef loka á aðgangi veljið „Lokaður til...“ (velja dag, mánuð og ár) í samræmi við eyðublaðið „Beiðni um lokun lokaverkefnis“. Athugið að beiðnin þarf að vera samþykkt af viðeigandi deild. ATHUGIÐ ef beiðninni er skila inn án undirritunar þá telst hún ekki gild og ritgerðin verður opnuð.
- Samþykkta og undirritaða beiðni þarf að vista sem PDF og hlaða upp sem skrá í Skemmu. Veljið „Annað“ í Lýsing og „Opinn“ í Aðgangur.
- Athugið: ef ósamræmi er milli aðgangs sem valinn er í Skemmunni og tilgreindri dagsetningu á beiðninni mun dagsetning aðgangs í Skemmunni breytast til samræmis við beiðnina.
- Sjá nánar um lokun lokaverkefna.

> Ef lokaverkefnið er fleiri en ein skrá er þeim hlaðið upp á sama hátt (sjá neðst „Hlaða upp fleiri skrám“)

> Smelltu á Áfram til að fara í staðfesta skil - Skref 3 af 3
