Þessi leiðarvísir er ætlaður nemendum í verkefnastjórnun (MPM). Hér er tekið saman ýmislegt gagnlegt sem tengist ritgerðaskrifum í námi og hvernig best er að nýta bókasafnið.
Gagnasöfn í verkefnastjórnun - Sérvalin gagnasöfn í áskrift HR og í landsaðgangi fyrir nemendur í verkefnastjórnun. Meðal gagnasafna eru IEEE Xplore, ScienceDirect, ProQuest o.fl. | |
Leitir.is (HR) - Leitir.is veitir aðgang að fjölbreyttu vísinda-, fræðslu- og afþreyingarefni. Vefurinn veitir upplýsingar um bækur, tímarit og greinar, rafbækur, hljóðbækur, tónlist, ljósmyndir, lokaverkefni háskóla, myndefni, vefsíður, fornleifar og muni. Oft er hægt að skoða ljósmyndir og sækja heildartexta. | |
Tímarit í áskrift - Listi yfir tímarit í áskrift HR eða í landsaðgangi. Hægt er að fletta upp tímaritum eftir titlum og ef tímaritið kemur upp þá er það í áskrift. Upplýsingarnar sem koma fram eru meðal annars í hvaða gagnasafni/söfnum tímaritið er aðgengilegt, hvaða árgangar eru aðgengilegir og hvort tímaritið sé ritrýnt. | |
Heimildaleit - leiðarvísir um heimildaleit, ritrýni, áreiðanleika heimilda, ritstuld, Turnitin o. fl. | |
APA heimildastaðall - nemendur í verkefnastjórnun nota APA staðalinn fyrir tilvísanir og heimildaskrár. | |
Zotero - Zotero er ókeypis heimildaforrit sem bókasafnið mælir með að nemendur noti við ritgerðaskrif. Forritið heldur utan um heimildirnar og býr til tilvísanir og heimildaskrá samkvæmt APA í Word. Því fyrr sem byrjað er að nota Zotero því betra. Zotero eykur gæði verkefna og sparar nemendum tíma við heimildaskráningu. | |
Turnitin - Turnitin er hugbúnaður til varnar ritstuldi sem háskólar á Íslandi hafa tekið í notkun. Hugbúnaðurinn ber texta/verkefni nemanda saman við gagnasafn sem innbyggt er í kerfið og skilar samanburðarskýrslu. | |
Millisafnalán - Ef bókasafnið á ekki bókina eða hefur ekki aðgang að heildartexta greinarinnar þá er hægt að panta bókina/greinina með millisafnalánaþjónustunni. Nemendur skulu kynna sér verðskrána áður en pantað er. |