Að vista heimildir inn í Zotero
Þegar þú ert búin að bæta Zotero viðbótinni við vafrann þinn þá birtist Zotero táknið í hægra horni vafrans. Táknið breytist eftir því hvaða heimild þú ert að skoða að hverju sinni í vafranum.
Til þess að vista heimild inn í Zotero þarft þú að vera með Zotero forritið opið. Gott er að búa til möppu fyrir tiltekið verkefni sem heimildirnar detta þá inn í. Þegar heimildin er fundin og smellt er á Zotero hnappinn vistast þær skráningarupplýsingar (meta data) sem eru læsilegar á síðunni í tiltekna möppu.
Þegar upplýsingar um heimildina detta inn í Zotero er gott að fylgjast vel með hvort þær séu réttar. Ekki treysta á að þær detti rétt inn! Það eru Zotero dæmi fyrir helstu tegundir heimilda inn á hverju staðli fyrir sig ( APA, IEE og Oscola), sem hægt er að fylgja til þess að tryggja það að tilvísanir og heimildaskrá komi rétt út.
Einnig er hægt að setja heimildir inn með því að nota DOI númer tímaritsgreina, ISBN númer bóka og önnur kennileiti heimilda eins og PMIDs með því að setja númerin inn hjá töfrasprotanum.
Ef uppsetningin hefur gengið upp þá ætti að vera kominn Zotero flipi í Word. Ath. þetta getur litið öðruvísi út eftir stýrikerfum.
Ef hann er ekki sjáanlegur getur þú prófað að loka (quit fyrir notendur makka) Word og fara inn I Zotero - Settings - Cite - Word processors og smellt á Reinstall Microsoft Word Add-in.
Þegar smellt er á Zotero flipann í Word birtast þessir valkostir:
Add/Edit Citation: setur inn tilvísun.
Add/Edit Bibliography: setur inn heimildaskrá eða breytir.
Document preferences: skiptir t.d um staðal.
Refresh: uppfærir Zotero gögn
Unlink citations: aftengir Zotero við þetta Wordskjal
Til þess að búa til tilvísun smellir þú á Add/Edit Citation takkann. Í fyrsta skiptið sem þú vísar í heimild velur þú staðalinn sem þú ert að nota í þessu verkefni.
Þú velur svo heimildina sem þú vilt vísa í.
og Zotero býr hana til samkvæmt staðlinum sem þú valdir.
Ef þú vilt vísa í fleiri en eina heimild í einu þá velur þú multible sources
Þaðan notar þú örvarnar til að bæta heimildum við.
Til að bæta við blaðsíðutali þá bætir þú tölustöfunum hér
Til þess að fá fram heimildaskrá (ATH. Það þarf að vera komin tilvísun frá Zotero í skjalið) þarf svo að koma bendlinum fyrir þar sem heimildaskráin á að birtast og smella á Add/Edit Bibliography. Það þarf einungis að gera einu sinni. Eftir það er nóg að setja inn tilvísun úr Zotero í textann og heimildirnar bætast við heimildasrkrána samkvæmt þeim heimildastaðli sem valinn var í upphafi.
Ekki reyna að breyta heimildaskrá handvirkt í Word. Það þarf alltaf að fara í forritið sjálft og breyta upplýsingum þar og smella svo á Refresh undir Zotero flipanum í Word.
Ef þú lendir í vandræðum með notkun eða uppsetningu getur þú bókað tíma hjá þínum tengilið hér.