Til þess að finna bækur og annað rafrænt efni í áskrift Hr á að nota hr.leitir.is. Leitir er rafræn bókasafnsskrá yfir allar bækur sem til eru á íslenskum bókasöfnum ásamt rafrænum tímaritsgreinum í Landsaðgangi. Byrjað er að leita aðeins í safnkosti HR en svo er hægt að víkka leitina og athuga hvort efnið sé til í öðrum söfnum á landinum.
Notaðu Innskráningu með rafrænum skilríkjum til að endurnýja útlán eða taka frá bækur. Bækur sem eru í útláni er hægt að taka frá og þú færð sendan ru-tölvupóst þegar þú mátt sækja bókina en bókin er geymd fyrir þig í 3 daga. Ósóttar frátektir verða lánaðar næsta í röðinni.
Háskólinn í Reykjavík hefur tekið í notkun nýtt rafbókasafn fyrir háskólastig með aðgengi að tæplega 200.000 titlum:
Til að virkja aðganginn þinn að ProQuest Ebook Central í fyrsta skiptið þarftu:
Bókasafnið notar Dewey flokkunarkerfið til að raða bókunum í hillunum. Dewey kerfið byggir á hlaupandi tölum...
Helstu flokkar þar sem þú finnur íþróttafræði bækur:
373 Framhaldsskólar
612 Lífeðlisfræði mannsins
613 Heilsuefling
617,1 Meiðsli og sár
796 Keppnisíþróttir, útiíþróttir, útivist og útileikir
2023 nóv.
2023 okt
2023 sep
2023 maí
2023 maí
2023 jan
2023 jan
2023 jan