Á heimasíðu Zotero er hægt að finna lausnir á hinum ýmsu villumeldingum.
Ekki hika við að hafa samband við þinn tengilið ef þú þarft frekari aðstoð.
Til þess að vista PDF skjöl þarf að opna skjalið í vafranum og smella á Zotero hnappinn. Þá vistast skjalið inn í Zotero en yfirleitt með mjög takmörkuðum upplýsingum. Ef það er ekki hægt að bæta við upplýsingum sjálfur þarf að hægri smella á pdf skjalið og velja Create Parent Item (Búa til móðurfærslu).
Velja Manual entry nema þú hafir DOI númer eða annað sem gæti nýst hér.
Þá býr Zotero til yfirskrá og setur pdf skjalið undir.
Mikilvægt er að lagfæra yfirskrána. Þ.e. að passa upp á að tegund heimildar (item type) sé rétt og fylla inn upplýsingar um heimildina eins og á við eftir þeim heimildastaðli (APA, IEE, Oscola) sem notaður er.
Ef Zotero flipinn er ekki sjáanlegur í word getur þú prófað að loka (quit fyrir notendur makka) Word og fara inn í Zotero - Settings - Cite - Word processors og smellt á Reinstall Microsoft Word Add-in.
Ef ekkert gerist getur verið gott að endurræsa tölvuna og prófa aftur.
Ef breyta þarf upplýsingum í feitletrað, skáletrað o.s.frv. getur þú gert það með því að bæta þessum táknum sitthvoru megin við orðið sem þarf að breyta.
<i> and </i> for italics
<b> and </b> for bold
<sub> and </sub> for subscript
<sup> and </sup> for superscript
Skoða fleiri atriði á síðu Zotero