Áður en þú setur upp Zotero:
Farðu inn á https://www.zotero.org/download/ og smelltu á Dowload Zotero for Mac.
Settu forritið upp eins og hvert annað forrit. Notaðu sjálfgefnu stillingarnar (ekki breyta neinu í uppsetningunni). Nú getur þú opnað Zotero forritið í þinni tölvu.
Næsta skref er að sækja Zotero Connector fyrir þann vafra sem þú ert að nota. Best að nota Firefox eða Chrome.
Þú sækir Zotero Connector á sömu síðu og þú sóttir forritið.
Samþykktu það sem vafrinn biður um þegar hann setur upp Zotero Connector. Nú ætti að birtast vistunarhnappur efst í hægra horni vafrans. Ef hnappurinn sést ekki er hægt að finna hnappinn og færa hann upp undir púsluspilsmerkinu (Extensions).Útlit Zotero hnappsins breytist efitr því hvernig heimild hann nemur. Fyrst þegar hann birtist þá getur hann birst sem
ATH Mikilvægt!
Stofnaðu strax aðgang hjá Zotero.org! Smelltu á Log in og þaðan getur þú farið í Register for a free account.
Zotero sendir tölvupóst með tengli til þess að virkja aðganginn.
Þegar búið er að stofna og virkja aðganginn þarf að setja aðganginn inn í Zotero forritið sjálft. Það er gert með því að fara í Zotero - Settings - Sync - Data Syncing og bæta við notendanafni og lykilorði sem þú stofnaðir áðan.
Færðu þig niður úr Sync yfir i Cite og hakaðu við Use classic Add Citation dialog (eða notaðu hefðbundið...).
Ef viðmótið hjá þér er stillt á íslensku hjá þér er hægt að breyta því með því að færa sig yfir í General og breyta yfir í ensku. Það þarf að endurræsa Zotero til þess að breytingarnar gangi í gegn.