Kennslubókasafn
Í kennslubókasafni er eitt eintak af öllum kennslubókum sem kenndar eru í grunnnámi á yfirstandandi misseri, auk valinna bóka í framhaldsnámi. Bókasafnið sækir upplýsingar um kennslubækur yfirstandandi misseris í bókalista HR á vef Bóksölu stúdenta. Verkefnastjórar sem hafa umsjón með bókapöntunum sinna deilda eru jafnframt hvattir til að senda umsjónarmanni kennslubókasafns bókalista ásamt upplýsingum um ítarefni í hverju námskeiði. Kennurum stendur til boða að láta taka frá efni úr safnkosti bókasafnsins, að fá efni útvegað annars staðar frá og/eða láta efni úr einkasafni liggja frammi í kennslubókasafni vegna kennslu í einstökum námskeiðum. Efni úr einkasafni kennara er eingöngu til afnota á safninu. Umsjón með kennslubókasafni hefur Anna Kristín Stefánsdóttir upplýsingafræðingur.
Innkaupapöntun fyrir kennslubókasafn (rafrænt form)
Vinsamlegast notið rafræna formið til að panta inn kennslubækur fyrir kennslubókasafnið sem ekki eru nú þegar til. Hægt er að fletta upp á Leitir.is til að sjá hvaða bækur eru til á bókasafninu. Aðeins er pantað eitt eintak af kennslubókum.
Rafrænt námsefni á leslista námskeiðs í Canvas
Bókasafnið hvetur kennara til að nýta sér safnkostinn í kennslu en minnir jafnframt á að mikilvægt er kynna sér vel reglur og vinnulag sem miða að því að virða höfundarétt og þá samninga sem gerðir hafa verið við eigendur efnis. Ólíkar reglur og aðferðir gilda um íslenskt efni annars vegar og erlent efni hins vegar.
Allir þeir sem nota gagnasöfnin sem bókasafn HR kaupir aðgang að, verða að virða höfundarétt á þeim verkum sem þar eru aðgengileg, en um hann fer samkvæmt lögum og samningum milli bókasafnsins og seljenda/eigenda.
Almennt má segja að samningar feli í sér að rafræn tímarit og aðrar heimildir sem tilgreindar eru á vef bókasafnsins séu eingöngu til afnota fyrir stúdenta og starfsmenn HR í þeim tilgangi að stunda nám, kennslu, rannsóknir og annað sem telst til einkanota. Það er með öllu óheimilt að nota upplýsingarnar í hagnaðarskyni og kerfisbundið niðurhal (download), afritun og dreifing á þeim er bönnuð.